Nú standa yfir hönnunarsamkeppnir um byggingar- og niðurrifsúrgang á Asóreyjum. Verkefni þátttakenda er að hanna nýjar vörur úr því sem fellur til í byggingariðnaði. Við hvetjum allt skapandi fólk til að taka þátt.

Vörurnar þurfa að nýta eina eða fleiri af úrgangstegundunum hér fyrir neðan:

  • ABS-plast
  • Frauðplast (EPS)
  • Gifsplötur
  • Viður
  • Ýmis steinefni sem falla til í byggingariðnaði
  • Gler

Hönnunarsamkeppnirnar fjórar hafa eftirfarandi þemu:

  • Klæðningar og yfirborðsefni
  • Húsgögn fyrir almannarými (bekkir og svoleiðis)
  • Innihúsgögn
  • Frjálst þema

Verðlaunaféð er 1500 evrur. Hönnunarsamkeppnin er á vegum ReBuild17 sem er samstarfsverkefni sjálfstjórnarsvæðisins Asóreyja, þróunarseturs í efnisfræði (CIMPA), ReSource International og Fibrenamics.

Sendu inn þína hönnun fyrir 19. júlí 2022.

Nánari upplýsingar má finna á þessari síðu: https://portal.azores.gov.pt/web/lrec/rebuild