Það gleður okkur að tilkynna nýja staðsetningu skrifstofu okkar á Íslandi. Við erum flutt í hús í eigu og í rekstri Tækniseturs/IceTec að Árleyni 8 í Reykjavík. Við þökkum þeim fyrir frábærar viðtökur og hlökkum til að vinna í þessu nýstárlega umhverfi með öðrum fyrirtækjum sem þar eru með starfsemi.

ReSource International ehf. byrjaði sína starfsemi á nákvæmlega sama stað árið 2014, þegar byggingin tilheyrði Nýsköpunarmiðstöð Íslands.